jæja... nuna er að koma vetrarfrí 
w0h00
auðvitað er bjórkvöld þá málið á fimmtudag
veðja á góða mætingu sko... alltaf góð mæting ef ég mæti
eða þannig 
svo er náttúrulega matarboðið hjá Hrafnhild á miðvikudag
þar munu vera BJEE-in, Erna, Herdís og að sjálfsögðu Hrafnhild
get ekki beðið... hrafnhild er alveg fræg fyrir mikið stress, frábæran mat og glæsilega þjónustu 
svooo er árshátíð Hrafnistu á föstudag..... eeef einhver hefur áhuga
allavega er djúsí matur og eitthvað frítt áfengi og læti 
ég vil svo minna á afmælið mitt... það mun verða mánudaginn 15. október þannig þið hafið nægan fyrirvara til að kaupa gjafir 
svo eiga gummi, daði og anton líka afmæli í þessum mánuði jibbí
ef kristína eltir ykkur með einhverja mynd... for god sake forðið ykkur!
en til að gera þetta að meira bloggi heldur en slúðri þá er ég basecly búin að eyða vikunni í að lesa um bókmenntasögu og vil ég benda á bloggið hennar ragnheiðar hér fyrir neðan sem lýsir algjörlega tilfinningum mínum 
svo fór helgin mín í að gefa öndunum, frisbí á miklatúni, skotbolta á austurvelli, rólur og sandkassa..... ég átti mjög skemmtilega helgi með systur minni
(... hún er 33ja ára)
ung í anda 
... við rændum samt einhverju barni með okkur til að vera ekki hallærislegar 
mamma mín er með myspace
langaði bara að koma því inní 
oooog nuna er ég búin að segja flest sem mér dettur í hug...
ps... herdís og elísa voru yndislegar á föstudaginn á klúbbnum
dýrka ykkur rónar
sjáumst,
KristíN